Myndavélin mín er i svíþjóð....
Um daginn þurfti ég að fara inn á klepp (vinnunnar vegna). Ég spjallaði við þrekvaxinn mann og bað hann mig að bíða á meðan hann náði í félaga sinn. Ég gekk inn í tóma tómstundarstofu sem var við ganginn. Þetta var ekki svo merkilegt herbergi, hlutlaus húsgögn og engar myndir á veggjunum. Ég gekk að tveim sófum í herberginu af einskæri forvitni. Ekki voru það þó sófarnir sem vöktu áhuga minn heldur var það hluturinn sem lá á borðinu á milli þeirra. Þetta var taflborð, taflborð ásamt 32 taflmönnum. Þetta hafði ekki verið svo merkileg sýn nema fyrir það hvernig taflborðið leit út. Erfitt var að greina reitina og var taflborðið allt frekar lúið. Það mátti sjá að reitirnir voru næstum eyddir upp vegna venjulegrar notkunar. Ég sast niður í sófann og leit aftur hugsi á borðið. Hversu margir höfðu spilað á það, hversu margir mis heilbrigðir menn höfðu sest hérna niður og leikið þennan leik sín á milli. Íþrótt hugans var viðurnefni taflsins, íþrótt hugans. Ég brosti út í aðra með sjálfum mér. Á þessu borði spiluðu menn sem flest allir töldust skrítnir í hausnum á einhvern hátt. Geðklofa, paranoid, og svo auðvitað fólk í afneitun svona svo eitthvað sé nefnt. Þetta minnti mig á ólempiuleika fatlaðra einhverja hluta vegna. Þar kepptust fatlaðir um hvert þeirra væri "best". Hér á kleppi gat ég ímyndað mér að menn spiluðu meira til þess að sanna fyrir sjálfum sér að þeir væru heilastir í kollinum. Maður sem er bestur í skák getur ekki verið skrítinn í kollinum, er það? Maðurinn úr móttökunni kallaði á mig frá ganginum og skildi ég þar með við þessar hugleiðingar mínar og stóð upp.
Ég velti þessu þó aðeins fyrir mér í bílnum á leiðinni til baka. Við eigum nefnilega bara eitt "merkilegt" taflborð hér á frónni. Það er borðið sem Boby spilaði á í den. Það borð var þekkt fyrir þessa örfáu leiki sem spilað var á það. Öll saga borðsins var frá þessum nokkru leikjum spiluðum milli þessa tveggja manna. Eftir leikinn var borðinu þrusað beint inn á safn. Ég velti því fyrir mér hvort borðið ég myndi velja mér til þess að hafa upp á hillu? Hvor sagan mér þótti merkilegri?
Ég velti þessu þó aðeins fyrir mér í bílnum á leiðinni til baka. Við eigum nefnilega bara eitt "merkilegt" taflborð hér á frónni. Það er borðið sem Boby spilaði á í den. Það borð var þekkt fyrir þessa örfáu leiki sem spilað var á það. Öll saga borðsins var frá þessum nokkru leikjum spiluðum milli þessa tveggja manna. Eftir leikinn var borðinu þrusað beint inn á safn. Ég velti því fyrir mér hvort borðið ég myndi velja mér til þess að hafa upp á hillu? Hvor sagan mér þótti merkilegri?

8 Comments:
Hæ óli
ég myndi sko tvímælalaust velja borðið á kleppi. Geðveikir eru mestu snillingar í heimi.
Geðveikin er í raun mesti djöfull eða andstæðingur snillinganna.
Sumir sigra aðrir láta hana valta yfir sig og gefa sig henni á vald.
En hvað er það að vera geðveikur, stundum er það bara að vera ekki venjulegur. Og hvað er að því að vera ekki venjulegur?
Pælið í þessu samfélagi? Fólk leggur sig hiklaust inná geðdeild eða biður um lyf vegna þess að það er ekki venjulegt.
Og svo eru þeir sem þurfa að vera vistaðir inni. Já já þeir eru alveg til. En hvar eru mörkin eiginlega. Ætli þeir þurfi endilega öll þessi lyf, haldið lyfandi dauðum vegna þess að þeir eru svo geðveikir. Er það sanngjarnt, er það virkilega óumflýjanlegt?
æ góða nótt.
og sofðu rótt ;).
Já þetta eru miklar og góðar pælingar takk fyrir síðast
á ekki að sýna manni meira :P
Jæja, Óli minn, á ekki að bæta sig í blogginu??? Svona koma nú og vera duglegur strákur.
En ég hlakka til að hitta þig yfir videoglápi.
Það er komið tími á annað blog
Ólafur!
Hvað er að gerast hjá þér, þú hættir ekki bara við snilldarblogg sisvona ég og örugglega fullt af öðrum sem hafa áhuga á hvað á daga þína hefur drifið hvetjum þig til að virkja á þér puttana og skrifa einhverja vitleysu hér inn! og hana nú. WAKE UP MY FELLOW!
Making money on the internet is easy in the undercover world of [URL=http://www.www.blackhatmoneymaker.com]blackhat downloads[/URL], It's not a big surprise if you don't know what blackhat is. Blackhat marketing uses not-so-popular or misunderstood ways to generate an income online.
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home